Menning

Pablo Francisco á leið til Íslands

Pablo Francisco er á leiðinni til Íslands og heldur uppistand í Hörpu í lok október. Hann er einn af vinsælustu grínistum heims og hefur komið fram um allan heim.

Í tilkynningu segir að grínistinn hafi komið nokkrum sinnum til Íslands. „Þeir sem hafa séð hann hér á Íslandi vita mætavel að hann er með nett ruglað uppistand og einmitt þekktur fyrir það um allan heim. Með ólýsanlegan húmor ásamt einstaka hljóðhæfileika hefur hann skapað sína eigin tegund af gríni og ekki er hægt að bera hann saman við einhvern slíkan í dag,“ segir í tilkynningu.

Grínistinn kom síðast til Íslands fyrir þremur árum og seldist upp á mjög skömmum tíma.

Nánari upplýsingar á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.