Fótbolti

Vilanova lentur í Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tito Vilanova.
Tito Vilanova. Mynd/Nordic Photos/Getty
Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, er kominn aftur til Barcelona eftir tveggja mánaða krabbameinsmeðferð í New York í Bandaríkjunum.

Vilanova lenti í Barcelona í morgun samkvæmt frétt á heimasíðu félagsins en hann hefur verið í New York frá 21. janúar.

Jordi Roura hefur stýrt Barcelona-liðinu í fjarveru Tito Vilanova en hefur engu að síður verið í sambandi við Vilanova þegar kemur að því að taka stærstu ákvarðanirnar.

Roura stýrði Barcelona-liðinu inn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar á dögunum en liðið er svo gott sem búið að tryggja sér sigur í spænsku deildinni.

Tito Vilanova fór í aðgerð 20. desember til að láta fjarlægja æxli í munnvatnskirtli en stýrði Barca-liðinu í í byrjun nýs árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×