Fótbolti

Zaragoza og Real Madrid gerðu jafntefli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Real Madrid gerði jafntefli við Zaragoza, 1-1, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Rodri kom Zaragoza yfir eftir aðeins sex mínútna leik en það var Cristiano Ronaldo sem jafnaði metin fyrir Real Madrid á 38. mínútu leiksins.

Fátt markvert gerðist í síðari hálfleiknum og niðurstaðan því 1-1 jafntefli. Real Madrid er því í öðru sæti deildarinnar með 62 stig, 13 stigum á eftir Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×