Fótbolti

Sneijder: Áttum þetta skilið

Fatih Terim og Didier Drogba fagna í kvöld.
Fatih Terim og Didier Drogba fagna í kvöld.
Tyrkneska félagið Galatasaray er komið í átta liða úrslit eftir glæsilegan 2-3 útisigur á Schalke í stórskemmtilegum leik.

Einn af nýju mönnunum í liði Galatasaray, Hollendingurinn Wesley Sneijder, var hæstánægður með leik kvöldsins.

"Við áttum þetta klárlega skilið. Við gerðum mikið af mistökum í síðari hálfleik, duttum of langt til baka og þeir gerðu okkur erfitt fyrir," sagði Sneijder.

"Við vildum ná þriðja markinu í leiknum en það gekk illa og pressan hjá þeim jókst bara. Schalke spilaði vel en við áttum þetta skilið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×