Fótbolti

Páfakjör ávísun á 4-0 sigur Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi skoraði tvö mörk í gær en hann er í guðatölu hjá mörgum knattspyrnuáhugamönnum.
Lionel Messi skoraði tvö mörk í gær en hann er í guðatölu hjá mörgum knattspyrnuáhugamönnum. Nordic Photos / Getty Images
Barcelona hefur nú spilað þrívegis þegar að páfakjörsfundur fer fram í Vatíkaninu og unnið alla leikina 4-0.

Börsungar unnu AC Milan í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær, einmitt með þessum mun. Páfakjörsfundur hófst í Vatíkaninu í gær og stendur nú yfir.

Barcelona hafði betur gegn Real Madrid, 4-0, þegar að páfakjör fór fram árið 1958 og svo vann liðið sigur á Las Palmas með sama mun eftir að páfakjörið var hafið árið 1978.

Óvíst er hvenær páfakjörinu lýkur í þetta skiptið en Barcelona leikur gegn Rayo Vallecano á sunnudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×