Fótbolti

Real kláraði Mallorca á fimm mínútum

Mynd/Nordic Photos/Gett
Real Madrid lenti tvívegis undir gegn Real Mallorca í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en vann að lokum öruggan 5-2 sigur.

Emilio Nsue kom gestunum frá Mallorca óvænt yfir á sjöttu mínútu en Gonzalo Higuian jafnaði á fimmtándu mínútu. Stuttu síðar var Aljandro Alfaro búinn að endurheimta forystuna fyrir Mallorca.

Madrídingar sneru svo leiknum sér í vil og kláruðu hann með þremur mörkum á fimm mínútna kafla í síðari hálfleik. Cristiano Ronaldo, Luka Modric og Higuain voru þar að verki en mark Modric var sérlega glæsilegt - þrumufleygur af löngu færi. Mesut Özil lagði upp tvö af þessum mörkum.

Karim Benzema innsiglaði svo sigurinn með marki í uppbótartíma en Madrídingar eru nú tíu stigum á eftir Barcelona á toppi deildarinnar sem á þar að auki leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×