Fótbolti

Vilanova á leið heim frá NY

Tito Vilanova.
Tito Vilanova.
Það styttist í að Barcelona endurheimti þjálfarann sinn sem hefur verið í New York undanfarnar vikur í krabbameinsmeðferð.

Íþróttastjóri Barcelona, Andoni Zubizarreta, hefur staðfest að Tito Vilanova komi heim frá New York á næstunni. Hann verði svo að ráða því sjálfur hvenær hann treystir sér aftur í vinnu.

Vilanova hefur verið fjarverandi nánast allt árið vegna veikinda sinna.

"Það eru frábærar fréttir að hann sé að koma til baka. Það virðist vera að hann megi komi heim," sagði Zubi.

Jordi Roura, aðstoðarmaður Vilanova, hefur leyst hann af upp á síðkastið og vonast til þess að Vilanova verði mættur á hliðarlínuna í næsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×