Fótbolti

Vidic: Yrði ekki hissa að sjá Ronaldo aftur í búningi United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo með Ryan Giggs.
Cristiano Ronaldo með Ryan Giggs. Mynd/Nordic Photos/Getty
Nemanja Vidic, fyrirliði Manchester United, býst við því að Cristiano Ronaldo spili aftur fyrir Manchester United í framtíðinni en Ronaldo mætir með Real Madrid á Old Trafford í kvöld í sínum fyrsta leik á sínum gamla heimavelli síðan að hann var seldur til Spánar.

Leikur Manchester United og Real Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar hefst klukkan 19.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

„Ég sé hann fyrir mér í búningi Manchester United á ný. Hann er stuðningsmaður United og saknar enn félagsins og andrúmsloftsins hér. Ég yrði því ekki hissa að sjá Ronaldo aftur í búningi United. Það er ekki auðvelt verk að fá hann aftur til félagsins en ég myndi elska að sjá hann með okkur á ný," sagði Nemanja Vidic við Daily Telegraph.

Cristiano Ronaldo spilar í kvöld sinn fyrsta leik á Old Trafford síðan að hann fór frá Manchester United sumarið 2009.

„Hann var smá stressaður í fyrri leiknum en það verður ekki þannig á Old Trafford. Hann verður mjög einbeittur og við getum ekki búist við því að hann eigi slæman dag. Hann verður staðráðinn að spila vel og landa sigri fyrir Real Madrid," sagði Vidic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×