Fótbolti

Ronaldo: Ánægður en líka leiður vegna Manchester United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Mynd/Nordic Photos/Getty
Cristiano Ronaldo tryggði Real Madrid sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær þegar hann skoraði sigurmarkið í seinni leiknum á móti sínum gömlu félögum í Manchester United í fyrsta leik sínum á Old Trafford síðan að hann yfirgaf United sumarið 2009.

Ronaldo skoraði í báðum leikjunum því hann gerði jöfnunarmarkið í 1-1 jafntefli liðanna í fyrri leiknum á Santiago Bernabéu í Madrid. Ronaldo sýndi sínu gamla félagi virðingu með því að fagna hvorugu markanna og hann hefur nú tjáð sig um blendnar tilfinningar sínar inn á twitter.

„Takk fyrir magnaðar og ótrúlega móttökur í gær. Ég er ánægður með að vinna leikinn en ég er einnig leiður vegna Manchester United," skrifar Manchester United á twitter-síðu sína.

Cristiano Ronaldo hefur nú skorað átta mörk í átta leikjum í Meistaradeildinni á tímabilinu og alls 40 mörk í 41 leik í öllum keppnum með Real Madrid á leiktíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×