Fótbolti

Messi skoraði í fimmtánda deildarleiknum í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Barcelona vann í kvöld 2-1 sigur á Sevilla á Spáni og komst þar með aftur á sigurbraut eftir tapið fyrir AC Milan í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Alberto Botia kom Sevilla yfir í leiknum með skallamarki á 42. mínútu og var það eina mark fyrri hálfleiksins. David Villa jafnaði metin á 52. mínútu, einnig með skalla eftir fyrirgjöf en sending Dani Alves inn í teig var glæsileg.

Messi tryggði svo sigurinn á 60. mínútu með marki úr skyndisókn. Cristian Tello átti sendinguna fyrir markið á Messi sem skoraði af stuttu færi. Bæði lið fengu tækifæri til að skora eftir þetta en niðurstaðan reyndist 2-1 sigur heimamanna.

Messi hefur nú skorað í fimmtán deildarleikjum í röð fyrir Barcelona sem er með fimmtán stiga forystu á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×