Fótbolti

Moutinho mátaði Malaga

Moutinho fagnar marki sínu í kvöld.
Moutinho fagnar marki sínu í kvöld.
Porto er í ágætri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Malaga í Meistaradeildinni eftir 1-0 heimasigur í kvöld. Þeir héldu markinu hreinu og það gæti reynst dýrmætt.

Fyrri hálfleikur var ákaflega dapur svo ekki sé meira sagt. Porto betra en skapaði sér ekki góð færi og ekkert var skorað í þessum leiðinlega fyrri hálfleik.

Heimamenn voru fljótir að komast yfir í síðari hálfleik. Moutinho fékk frábæra stungusendingu sem hann skilaði listavel í netið. Hans annað mark í keppninni í vetur.

Þrátt fyrir ágæt tilþrif tókst liðunum ekki að bæta við mörkum og spenna fyrir síðari leikinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×