Fótbolti

Wenger tapsár | Þakkaði ekki fyrir leikinn

Wenger lætur hér í sér heyra í kvöld.
Wenger lætur hér í sér heyra í kvöld. vísir/getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, þótti setja niður í kvöld er hann rauk út af vellinum í lok leiksins við FC Bayern án þess að þakka Jupp Heynckes, þjálfara Bayern, fyrir leikinn.

Wenger var gríðarlega fúll og stormaði í göngin án þess að kasta kveðju á nokkurn mann.

Hann var í vondu skapi fyrir leikinn og hellti sér yfir blaðamenn í gær.

Blaðamenn hafa ekki enn náð í skottið á honum og spurning hvort hann gefi viðtal á eftir. Það viðtal gæti orðið áhugavert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×