Fótbolti

Robben: Komnir langleiðina í átta liða úrslit

Robben fagnar með félögum sínum.
Robben fagnar með félögum sínum.
Hollendingurinn Arjen Robben, leikmaður FC Bayern, var eðlilega kátur með góðan leik sinna manna gegn Arsenal í kvöld. Bayern vann leikinn, 1-3.

"Við erum að spila virkilega vel þessa dagana. Við erum með góðan hóp og erum búnir að bæta okkur frá síðasta ári. Við tókum stórt skref inn í átta liða úrslitin í kvöld," sagði Robben sem kom af bekknum fyrir Ribery. Hann spilaði í sokkabuxum.

"Við áttum von á því að Arsenal myndi byrja leikinn með látum með allan stuðninginn úr stúkunni. Við vorum við öllu búnir.

"Sá undirbúningur hjálpaði okkur og mér fannst allir standa sig vel. Ef lið skorar svo tvö mörk þá er það í góðri stöðu," sagði Robben og var greinilega búinn að gleyma þriðja markinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×