Körfubolti

Stjörnuleikur kvenna í Keflavík í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir fékk flest atkvæði í netkosningunni.
Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir fékk flest atkvæði í netkosningunni. Mynd/Valli
Stjörnuleikur kvenna í körfubolta fer fram í kvöld eftir tveggja ára hlé en leikurinn fer að þessu sinni fram í Toyota-höllinni í Keflavík eða á heimavelli toppliðs Dominos-deildar kvenna.

Í leiknum mætast úrvalslið Landsbyggðarinnar á móti úrvalsliði Höfuðborgarsvæðisins. Í síðasta Stjörnuleik kvenna árið 2011 hafði Reykjanesið betur á móti Landsbyggðinni en þá var spilað í Ásgarði í Garðabæ.

Kvöldið hefst klukkan 19.00 með undankeppni í 3ja stiga skotkeppninni en klukkan 19.30 hefst síðan leikurinn sjálfur. Í hálfleik verða síðan úrslitin í 3ja stiga skotkeppninni.

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa lið Landsbyggðarinnar þar sem Keflavík var á toppnum um áramótin og Finnur Stefánsson, KR, var efsti þjálfari höfuðborgarsvæðisins og þjálfar því það lið. Byrjunarliðið var valið í netkosningu en þeir félagar völdu svo sjö leikmenn til viðbótar í sín lið.

Heppnir áhorfendur fá tækifæri á að vinna flugferð fyrir tvo til einhvers áfangastaðar Icelandair í Evrópu og ársbirgðir af Domino‘s pizzum eða 52 talsins.

Aðgangur er ókeypis líkt og á Stjörnuleik karla á dögunum og Sport-TV sýnir beint frá Toyota höllinni í kvöld.

Þátttakendur í Stjörnuleik kvenna í kvöld:

Lið landsbyggðarinnar:

-Byrjunarliðið-

Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík

Lele Hardy, Njarðvík

Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík

Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæfelli

Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli

-Varamenn-

Crystal Smith, Grindavík

Petrúnella Skúladóttir, Grindavík

Salbjörg Slævarsdóttir, Njarðvík

Ingunn Embla Kristínardóttir, Keflavík

Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík

Jessica Ann Jenkins, Keflavík

Alda Leif Jónsdóttir, Snæfelli

Lið höfuðborgarsvæðisins:

-Byrjunarliðið-

Britney Jones, Fjölni

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR

Siarre Evans, Haukum

Jaleesa Butler, Val

Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Haukum

-Varamenn-

Guðbjörg Sverrisdóttir, Val

Kristrún Sigurjónsdóttir, Val

Shannon McCallum, KR

Björg Guðrún Einarsdóttir, KR

Dagbjört Samúelsdóttir, Haukum

Bergdís Ragnarsdóttir, Fjölni

Fanney Lind Guðmundsdóttir, Fjölni

Keppendur í 3ja stiga skotkeppninni:

Fleiri fréttir

Sjá meira

×