Körfubolti

Arnar Freyr og Ingibjörg í Keflavík

Ingibjörg fagnar Íslandsmeistaratitlinum með Keflavík vorið 2011.
Ingibjörg fagnar Íslandsmeistaratitlinum með Keflavík vorið 2011. Mynd/Daníel
Leikstjórnendurnir og parið Arnar Freyr Jónsson og Ingibjörg Jakobsdóttir hafa gengið til liðs við Keflavík eftir hálfs árs dvöl í Danmörku.

Ingibjörg spilaði lítið á síðasta tímabili eftir að hafa slitið krossband en varð Íslands- og bikarmeistari með Keflavíkurliðinu tímabilið 2010-2011. Arnar Freyr spilaði með BC í Árósum en hætti óvænt hjá félaginu fyrr í mánuðinum.

Báðir leikmenn léku áður með Keflavík. Arnar er uppalinn hjá félaginu en Ingibjörg er uppalinn Grindvíkingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×