Golf

Flottasti bakgarður heims | Myndband

Langar þig að spila Augusta, St. Andrews, Sawgrass og Pebble Beach-golfvellina á einum og sama stað? Þá þarft þú að heimsækja Dave Pelz, fyrrum starfsmann Nasa og núverandi golfkennara. Hann hefur kennt mönnum eins og Phil Mickelson, Vijay Singh, Payne Stewart og Lee Janzen.

Wall Street Journal útnefndi bakgarðinn hans á dögunum flottasta bakgarð heims. Það ekki að ástæðulausu. Hann er með fullkomnar eftirlíkingar af 12. flötinni á Augusta, 17, flöt á Sawgrass, 14. flöt á Pebble Beach og 17. flöt á St. Andrews.

Þetta eru margar frægustu golfholur heims og þessi bakgarður er engum líkur.

Skoða má dýrðina á myndbandinu sem fylgir fréttinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×