Menning

Víti í Eyjum og bækur Ragnars í sjónvarpið

freyr@frettabladid.is skrifar
samningurinn í höfn Gunnar Helgason ásamt Kristni Þórðarsyni hjá Sagafilm þegar samningurinn var í höfn. Sagafilm og Þorvaldur Davíð ætla einnig í samstarf. fréttablaðið/vilhelm
samningurinn í höfn Gunnar Helgason ásamt Kristni Þórðarsyni hjá Sagafilm þegar samningurinn var í höfn. Sagafilm og Þorvaldur Davíð ætla einnig í samstarf. fréttablaðið/vilhelm
Sagafilm hefur keypt sjónvarpsþáttaréttinn að barnabókinni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason. Gerðir verða tíu til tólf þættir sem byggja á bókinni.

„Okkur fannst þetta mjög fín bók. Við höfum lengi verið að leita að barna- og unglingaefni. Þegar við lásum þessa bók fannst okkur allt smella saman," segir Kristinn Þórðarson, yfirmaður framleiðslu á leiknu efni hjá Sagafilm.

Víti í Vestmannaeyjum er fyrsta bókin í bókaflokki um Jón Jónsson, Eivöru, Ívar og Skúla og gerist á Shellmótinu í Vestmannaeyjum. Hún var önnur mest selda barnabókin á síðasta ári. Önnur bókin í flokknum, Aukaspyrna á Akureyri, er mest selda barnabókin á Íslandi fyrir þessi jólin.

Þættirnir verða að mestu leyti teknir upp í Vestmannaeyjum og hugsanlega á Shellmótinu sem er haldið í bænum á hverju sumri. Gunnar Helgason mun sjálfur fara fyrir handritsteymi sem á eftir að setja saman. Stefnt er að tökum sumarið 2014.

Spurður segir Kristinn að möguleikinn á að gera þætti úr Aukaspyrnu á Akureyri sé einnig fyrir hendi.

„Við höfum áhuga og hann segist ætla að skrifa eina eða tvær bækur í viðbót. En við byrjum á þessari og sjáum svo til."

Sagafilm hefur einnig gengið til liðs við leikarann Þorvald Davíð Kristjánsson um gerð sjónvarpsþátta sem verða byggðir á glæpasögum Ragnars Jónassonar. Fyrr í haust var tilkynnt að Þorvaldur Davíð hefði keypt kvikmyndaréttinn að Snjóblindu Ragnars. Nú hefur hann tryggt sér, ásamt Sagafilm, réttinn á seinni bókum Ragnars um lögreglumanninn Ara Þór, Myrknætti og Rofi.

Bækurnar þrjár gerast allar á Siglufirði og sú nýjasta, Rof, gerist einnig í eyðifirðinum Héðinsfirði. Sagafilm og Þorvaldur Davíð hafa jafnframt fengið heimild til að framleiða sjálfstæða þætti byggða á persónu Ara Þórs.

„Við höfum starfað mikið með Þorvaldi og okkur líst mjög vel á þetta verkefni. Mér finnst þetta vera spennandi bækur og ekki skemmir fyrir að fá Þorvald í aðalhlutverkið," segir Kristinn. Handritaskrif hefjast á næsta ári og er stefnt á framleiðslu veturinn 2014 eða 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×