Tónlist

Daníel tvisvar tilnefndur

Vinsæll Daníel Óliver er í miklu dálæti á tónlistarsíðunni Scandipop.
Mynd/Lalli Sig
Vinsæll Daníel Óliver er í miklu dálæti á tónlistarsíðunni Scandipop. Mynd/Lalli Sig
Enn berast fréttir af nýjustu ofurstjörnu okkar Íslendinga, Daníel Óliver.

Tónlistarsíðan ScandiPop hefur nú tilnefnt hann til árlegra tónlistarverðlauna sín sem besta karlkyns flytjandann og nýjasta lag hans, DJ Blow My Speaker, sem besta lagið flutt af karlmanni.

Daníel var staddur í upptökum hjá stjörnupródúsernum Jonas von der Burg þegar Fréttablaðið náði af honum tali en kvaðst þakklátur og auðmjúkur yfir þessum heiðri. Úrslitin verða kunngjörð um miðjan janúar. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.