Gaman að vinna með mömmu 20. nóvember 2012 10:00 Tekinn við Orri Huginn Ágústsson fer með öll helstu hlutverk í Ævintýrinu um Augastein. „
Ég tók þátt í sýningunni með Felix Bergssyni nokkrum sinnum og þegar ég spurði hann út í sýninguna í ár voru blikur á lofti. Ég sagði við Felix að hann yrði að setja upp verkið, annars mundi ég gera það. Og úr því varð," útskýrir Orri Huginn Ágústsson sem fer með öll helstu hlutverk í leiksýningunni Ævintýrið um Augastein. Ævintýrið var frumsýnt í London fyrir tíu árum og samdi Felix Bergsson bæði verkið og bar uppi sýninguna þar til nú. Orri Huginn bregður sér ekki aðeins í eitt hlutverk í sýningunni heldur bregður sér í ýmis líki. „Ég stýri einnig brúðum og skuggamyndum og það er mikil nákvæmnisvinna sem fylgir því, æfingarnar hafa því verið margar og strangar." Ævintýrið segir frá piltinum Augasteini sem lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna þrettán. Þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist Augasteins æsist leikurinn til muna. Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri og alþingismaður, leikstýrir verkinu, en hún er einnig meðhöfundur verksins og móðir Orra Hugins. „Mamma tók því fegins hendi að fá að leikstýra mér, ég er orðinn þetta gamall og því langt síðan hún hefur fengið að stýra mér. Samstarfið hefur gengið frábærlega og það er bæði gaman og gefandi að eiga svona samband við mömmu sína." Ævintýrið um Augastein verður frumsýnt í Tjarnarbíói þann 25. nóvember.- sm
Lífið Menning Mest lesið Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum Lífið Jon Landau er látinn Bíó og sjónvarp Eins söguleg og skáldsaga getur orðið Lífið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Tíska og hönnun „Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“ Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira