Samstarf

Manneskjan sett í öndvegi

Kristján Hjálmar Ragnarsson er í rauðum bol lengst til vinstri. Hér er hann með samstarfsfólki sínu í Sjúkraþjálfun Kópavogs.
Kristján Hjálmar Ragnarsson er í rauðum bol lengst til vinstri. Hér er hann með samstarfsfólki sínu í Sjúkraþjálfun Kópavogs. mynd/vilhelm
Við leggjum mikla áherslu á mannhelgi og setjum skjólstæðinga okkar í öndvegi," segir Kristján Hjálmar Ragnarsson, sjúkraþjálfari og annar eigenda Sjúkraþjálfunar Kópavogs.



Hann segir sjúkraþjálfun ganga út á að bæta færni og lífsgæði.

„Sérhæfing sjúkraþjálfara byggir á greiningu vandamála í stoðkerfi og meðferðaráætlunum til lengri eða skemmri tíma. Þannig bætum við ástand skjólstæðinga okkar og aukum vinnufærni þeirra," útskýrir Kristján.



Fagmennska

Í Sjúkraþjálfun Kópavogs starfa tólf sjúkraþjálfarar, þar af níu sérhæfðir í liðfræðum, sem er meðferð á hrygg og liðum.

„Hornsteinn sjúkraþjálfunar sem hér er lögð til miðast við að skjólstæðingar okkar séu virkir í þeirri markmiðasetningu og þróun sem verður í framhaldinu," segir Kristján.

Í Sjúkraþjálfun Kópavogs leita einstaklingar aðstoðar vegna minniháttar, meiriháttar eða krónískra vandamála.



Nákvæm greining


„Sérstaða Sjúkraþjálfunar Kópavogs felst í nákvæmri greiningu og áætlun um samstarf sjúkraþjálfara og skjólstæðings í upphafi. Við skilgreinum vel hvers vegna fólk kemur og hvert við ætlum saman. Eftir nákvæma skoðun sjúkraþjálfara er lögð niður áætlun og æfingaplan í samstarfi við skjólstæðinginn því við erum sannfærð um að skorti upp á sjálfshjálp einstaklingsins verði árangurinn ekki jafn góður," segir Kristján.



Lífsgæðin í húfi


Í Sjúkraþjálfun Kópavogs er aðbúnaður og tækjakostur eins og best verður á kosið. Í lok október opnar æfingasalurinn eftir stækkun og sjúkraþjálfarar starfa í lokuðum herbergjum sem tryggja einrúm og næði.

„Flestir fara til sjúkraþjálfara þegar eitthvað bjátar á og truflar þá í lífinu; þegar stoðkerfi líkamans veldur óþægindum. Íþróttafólk kemur á fyrirbyggjandi forsendum til að sjá hvort misvægi sé í stoðkerfinu sem grípa þurfi inn í strax," útskýrir Kristján.

Hann segir mikilvægt að fólk átti sig á heildrænum áhrifum misvægis eða misálags í skrokknum því þau hafi áhrif á færni, vinnugetu og lífsgæði.

„Heildartenging við daglegt líf, umhverfi og aðstæður skiptir máli því það er ekki bara handleggur sem kemur í meðferð heldur heil manneskja.

Hana umgöngumst við af virðingu og horfum á hlutina í heild en stundum þarf að opna augu fólks fyrir því að misvægi sé farið að trufla líf þess meira en það áttar sig á. Þá er ekki nóg að fara í vikulega meðferð til sjúkraþjálfara heldur þarf viðkomandi að breyta til á öllum vígstöðvum."

Sjúkraþjálfun Kópavogs er í Hamraborg 12, 2. hæð. Sjá nánar á sjk.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×