Lífið

Connelly mætt á svæðið

Jennifer Connelly.
Jennifer Connelly.
Ben Stiller yfirgaf landið seinni partinn í gær en hann er væntanlegur aftur á næstunni. Stiller og félagar héldu partí þar sem veitingastaðurinn La Primavera var áður til húsa á miðvikudagskvöld. Fjölmörgum föngulegum stúlkum var boðið og gleðin stóð yfir langt fram á nótt.

En það er skammt stórra högga á milli á Íslandi og Hollywood-stjarnan Jennifer Connelly kom til landsins í gærkvöldi. Hún leikur konu Nóa í mynd Darrens Aronofsky um athafnasama smiðinn, sem leikinn er af Russell Crowe. Tökur hefjast innan skamms rétt eins og á mynd Ben Stillers, The Secret Life of Walter Mitty.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.