Tíska og hönnun

Fyrirsætur í hár saman á Twitter

Irinu Shayk líkaði ekki gagnrýnin á hárgreiðslu kærasta síns Cristiano Ronaldo á Twitter.
Irinu Shayk líkaði ekki gagnrýnin á hárgreiðslu kærasta síns Cristiano Ronaldo á Twitter.
Íraelska ofurfyrirsætan Bar Refaeli reitti samstarfskonu sína, Irinu Shayk, til reiði þegar hún birti skoðun sína á klippingu fótboltakappans Cristiano Ronaldo, kærasta Shayk, á Twitter. Refaeli var ekki par hrifin af hárgreiðslunni sem Ronaldo skartar á meðan hann spilar með portúgalska landsliðinu á EM í knattspyrnu og skrifaði á Twitter: „Það eina sem ég get hugsað um þegar ég sé Ronaldo er að það ætti að banna hárgel."

Shayk var ekki lengi að svara Refaeli á samskiptasíðunni og sagði henni að passa hvað hún segði. „Að vera vondur fer engum vel. Lærðu að elska," skrifaði Shayk sem greinilega líkaði ekki við gagnrýni á hárgreiðslu kærastans.

Refaeli var reyndar fljót að leita sátta og vingast aftur við kollega sinn. „Ég elska þig og ég elska kærastann þinn. Ég er bara ekki hrifin af hárgeli."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×