Fótbolti

Veigar Páll: Finnst ég eigi að spila hvern einasta leik hérna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Veigar Páll er ekki enn kominn á blað í norska boltanum á þessari leiktíð.
Veigar Páll er ekki enn kominn á blað í norska boltanum á þessari leiktíð. Mynd/Anton
Veigar Páll Gunnarsson hefur átt erfitt uppdráttar hjá liðinu sínu, Vålerenga, á tímabilinu. Hann hefur aðeins tekið þátt í sex af þrettán leikjum liðsins og er ekki enn kominn á blað.

„Ég hef lítið fengið að spila en er að vinna í því að breyta þeim hlutum," sagði Veigar Páll en hann meiddist á undirbúningstímabilinu og var ekki í leikformi í upphafi leiktíðar.

„Ég og þjálfarinn ákváðum að gefa mér tíma til þess að komast í leikform. Ég gerði það á mánuði og komst í hörkuform. Ég sat samt enn á bekknum eftir það. Það er engin sérstök ástæða fyrir því."

Veigar segir að samstarf sitt og þjálfarans sé engu að síður gott og að þjálfarinn hafi ekki misst traust á honum.

„Hann segir það að minnsta kosti. Við erum með stóran hóp en mér finnst persónulega að ég eigi að spila hvern einasta leik hérna. Það er samt allt gott á milli okkar þjálfarans. Hann velur menn á undan mér en ég hef verið í liðinu í síðustu tveimur leikjum þannig að þetta er að koma."

Sóknarmaðurinn segir það aldrei hafa komið til greina að kasta inn hvíta handklæðinu og koma heim.

„Ég er sáttur hérna þrátt fyrir allt. Ég stefni á að vera í Noregi í tvö til þrjú ár í viðbót. Svo kem ég heim og spila fótbolta þar áður en ég hætti," sagði Veigar Páll en er alveg klárt að hann fari þá í Stjörnuna er hann kemur heim?

„Það verður gaman að koma heim og spila fótbolta þar. Ég vil ekki missa af því. Það er líklegast að ég fari í Stjörnuna en ég þori ekki að staðfesta það. Ég er líka mikill KR-ingur þannig að ég spila líklegast með öðru hvoru liðinu þegar ég kem heim."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×