Innlent

Bætur fyrir skartgripi 5% af innbústryggingu

þýfi Skartgripir eru meðal þess helsta sem innbrotsþjófar sækjast eftir.
Fréttablaðið/gva
þýfi Skartgripir eru meðal þess helsta sem innbrotsþjófar sækjast eftir. Fréttablaðið/gva
Þeir sem eru með innbú tryggt fyrir fimm milljónir króna fá aðeins 250 þúsund krónur í bætur fyrir stolna skartgripi þótt verðmæti þeirra sé miklu meira. Þetta er vegna þess að skartgripir eru ekki tryggðir nema fyrir fimm prósent af heildarvátryggingarupphæð innbús samkvæmt skilmálum tryggingafélaganna.

Hákon Hákonarson, eigandi Tryggingar og ráðgjafar sem býður upp á Tryggingavaktina, segir nokkuð ljóst að skartgripir á mörgum heimilum geti verið mörg hundruð þúsunda ef ekki milljóna króna virði. „Þess vegna er mikilvægt að innbústryggingar endurspegli verðmæti innbúsins eða að keypt sé sérstök trygging fyrir svo verðmæta skartgripi."

Að sögn Hákonar koma þessir skilmálar tryggingafélaganna um skartgripi viðskiptavinum sem brotist hefur verið inn hjá á óvart. „Fólk sem ekki hefur áttað sig á þessu er mjög ósátt. Því er almennt ekki bent sérstaklega á þetta þegar það kaupir tryggingar og fær þá kannski ekki upplýsingar um þessa skilmála nema það spyrji sérstaklega um skartgripi. Þeir sem hafa til dæmis keypt 10 milljóna króna innbústryggingu eru ósáttir við að vera háðir einhverjum takmörkunum með skartgripina."

Hákon bendir á að skartgripir séu meðal þess helsta sem innbrotsþjófar sækjast eftir.

„Þeir eru auðveldir í meðförum og það er mjög auðvelt að koma þeim í verð. Það má reyndar segja að ef fólk er með heima hjá sér aðra verðmæta hluti, eins og til dæmis málverk, sé ástæða til að tryggja þá sérstaklega. Því betur sem menn huga að þessum málum, þeim mun auðveldara er að fá bætur frá tryggingafélögunum. En auðvitað þarf að grípa til ráðstafana þegar farið er að heiman til þess að gera innbrotsþjófum erfiðara fyrir."

ibs@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×