Stefnir í þriðja stjórnsýslustigið 24. mars 2012 16:00 Halldór Halldórsson
Aukið hlutverk landshlutasamtaka sveitarfélaga í tengslum við yfirtöku verkefna frá ríkinu stefnir í að upp byggist þriðja stjórnsýslustigið á Íslandi, sagði Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, á landsþingi sambandsins á föstudag. Halldór benti á að við yfirfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga hafi verið miðað við að hvert þjónustusvæði væri með að lágmarki 8.000 íbúa. Aðeins sjö af 75 sveitarfélögum uppfylli það skilyrði. Því hafi sveitarfélögin þurft að taka upp samstarf í þessum málaflokki. „Ef það sama mun verða reyndin þegar þjónusta við aldrað fólk, og hugsanlega heilsugæsla einnig, verður tekin yfir af sveitarfélögunum má segja að einhvers konar þriðja stjórnsýslustig geti verið að myndast hér á landi," sagði Halldór í erindi sínu. Hann sagði mikilvægt að vanda til flutnings verkefna og ætla rúman tíma til þess. „Við verðum að ræða þann lýðræðishalla sem mun eiga sér stað ef aukin verkefni og ábyrgð flytjast til byggðasamlaga eða landshlutasamtaka sem ekki bera beina ábyrgð gagnvart íbúunum þar sem þeir koma ekki að beinni kosningu í stjórnir slíkra samstarfsverkefna." - bj
Fréttir Mest lesið Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Erlent „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Innlent „Þetta er ákall frá ungmennunum sjálfum“ Innlent „Góði líttu þér nær!“ Innlent „Það var mikil geðshræring á heimilinu“ Innlent Sprengdu yfirgefinn skýjakljúf í Lousiana Erlent Tækifæri til að sammælast um breytingar á stjórnarskránni Innlent Lítið mál að fjölga löggum Innlent Hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum og bölvar gallaðri reiknivél Innlent Andlát eftir höfuðhögg á LÚX komið á borð saksóknara Innlent Fleiri fréttir Lítið mál að fjölga löggum „Góði líttu þér nær!“ „Þetta er ákall frá ungmennunum sjálfum“ Tækifæri til að sammælast um breytingar á stjórnarskránni „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum og bölvar gallaðri reiknivél Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Tárast yfir verði á aðgerð og þúsundir barna á biðlista „Það var mikil geðshræring á heimilinu“ Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari látinn Tæplega áttatíu börn með stöðu sakbornings í ofbeldismálum Árásarmaður Ingunnar í sjö og hálfs árs fangelsi hið minnsta Börnin bíða, bíða og bíða Framkvæmdaleyfi að hluta í höfn fyrir lundinn umdeilda Ráðstöfun séreignarsparnaðar úr sögunni: „Ég skora á stjórnvöld að framlengja þetta ákvæði“ Þær 25 aðgerðir sem fjármagna á vegna ofbeldis barna Sjö ár frá síðustu stefnuræðu Bjarna sem forsætisráðherra Andlát eftir höfuðhögg á LÚX komið á borð saksóknara „Umferð einkaflugvéla hefur aldrei verið jafn mikil“ Metfjöldi veðurviðvarana að sumri til eftir rólegasta veturinn Telja nafnið geta orðið nafnbera til ama og segja nei Skrúfuþoturnar sem byltu millilandaflugi Íslendinga Fengu milljarði meira en bróðirinn en þurfa ekki að endurgreiða LHÍ stefnir á Skólavörðuholtið í stað Tollhússins Hvor hafði betur í kappræðunum? Hrókera í nefndum Alþingis Einstæð tveggja barna mamma fái alls ekki 421 þúsund krónur Fólk kveiki á kerti til minningar um Bryndísi Klöru Vill halda Borgarspítalanum opnum þegar að nýi spítalinn opnar Fær engar upplýsingar um lögreglumál sonar síns Sjá meira