Meiri undirliggjandi áhætta hér á landi 10. mars 2012 08:00 Sylvía Kristín Ólafsdóttir.
Viðbragðshópur Seðlabankans taldi mun meiri undirliggjandi kerfislega áhættu í bankakerfinu vegna samþjöppunar á eignarhaldi hér á landi en í Svíþjóð. Þetta kom fram í vitnisburði Sylvíu Kristínar Ólafsdóttur, fyrrverandi forstöðumanni viðbúnaðardeildar hjá Seðlabankanum, í Landsdómi í gær. Hún sagði að stuðst hafi verið við kerfi sænska Seðlabankans til að meta gæði útlána, en sér hafi þótt vera skekkja í því vegna samþjöppunar á eignarhaldi íslensku bankanna. Sylvía segir að unnið hafi verið að því að gera lausafjárpróf og álagspróf, og vinna við slíkt hafi stigmagnast þegar liðið hafi á árið 2008. Innan Seðlabankans hafi einnig verið unnið að því að draga upp sviðsmyndir af ýmiss konar fjármálaáföllum. Hún þrýsti á að samráðshópur um fjármálastöðugleika, sem fulltrúar Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og þriggja ráðuneyta skipuðu, gerði einhvers konar viðbragðsáætlun. Hún sagði að í ljós hafi komið að hópurinn hafi ekki haft heimildir til að gera slíka áætlun. Þegar til kastanna kom var starfsfólk Seðlabankans vel undirbúið og vann þrekvirki í bankahruninu, ekki síst vegna greiðslumiðlunar, sagði Sylvía.
Landsdómur Mest lesið Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Allir farþegarnir látnir Erlent Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Innlent Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Innlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Innlent Baráttukonur minnast Ólafar Töru Innlent Ógnaði fólki með barefli í bænum Innlent Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Baráttukonur minnast Ólafar Töru Bæjarskrifstofur og heimili rýmd „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Stórir pollar leika bílstjóra grátt Hellisheiði opin á ný Vonskuveður framundan Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Um hundrað manns dvelja í Grindavík Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara „Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“ Ólöf Tara Harðardóttir er látin Óveður í beinni, gímaldið og skemmdir eftir vatnstjón Hellisheiðin lokuð og óvissustig vegna snjóflóða Sjá meira