Viðskipti innlent

Allt að 300 herbergja hótel í Öskjuhlíðinni

Hótel í Öskjuhlíð Önnur af tveimur tillögum um hótel við rætur Öskjuhlíðar gerir ráð fyrir því að allt að þrjú hundruð herbergi verði í byggingunni sem verði að hluta til fimm hæðir og standi framan við Keiluhöllina.Mynd/GP Arkitektar
Hótel í Öskjuhlíð Önnur af tveimur tillögum um hótel við rætur Öskjuhlíðar gerir ráð fyrir því að allt að þrjú hundruð herbergi verði í byggingunni sem verði að hluta til fimm hæðir og standi framan við Keiluhöllina.Mynd/GP Arkitektar
Fyrirspurn um hvort leyft verður að byggja allt að þrjú hundruð herbergja hótel framan við Keiluhöllina í Öskjuhlíð er nú komin til skipulagsfulltrúans í Reykjavík.

Gert er ráð fyrir að reisa nýbyggingu vestan og framan við Keiluhöllina og eina hæð ofan á núverandi hús. Hótelið verður í tveimur samtengdum nýbyggingum. Á hæðinni ofan á Keiluhöllinni á meðal annars að vera líkamsræktarstöð, baðstofa og önnur afþreyingaraðstaða. Tengja á hótelið og Keiluhöllina með göngum neðanjarðar undir núverandi bílastæðum.

Rúnar Fjeldsted, framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar, undirstrikar að málið sé á algjöru byrjunarstigi þótt það hafi verið mörg ár í skoðun hjá Keiluhöllinni.

„Þetta er komið ákaflega stutt og er núna aðeins sem fyrirspurn í borgarskipulaginu," segir Rúnar og bendir á að frá þeim punkti geti verið langur ferill í kerfinu þar til niðurstaða fæst. „Við erum eiginlega aðeins í könnunarvinnu og ætlum að sjá til hvert hún leiðir. Við erum alls ekki í kapphlaupi við tímann."

Í tillögunni er lagt til að höfð verði makaskipti á landi innan lóðamarka Keiluhallarinnar til norðurs, austurs og suðurs og á landi sem Reykjavíkurborg á við Flugvallarveg vestan við Keiluhöllina. Þar er bílaleigan Hertz nú með aðstöðu.

„Byggingarmáti hótelsins er hugsaður þannig að húsið á standi á súlum og svífi yfir klettunum einni hæð ofar en þeir, þannig að sjónræn tengsl verði til vesturs frá aðkomu," segir í fyrirspurn Keiluhallarinnar. Í henni eru tvær tillögur að hótelbyggingunni. Annars vegar að fremra húsið verði á fjórum hæðum en það aftara á tveimur hæðum. Hins vegar er gert ráð fyrir fimm hæða húsi fyrir framan og þriggja hæða byggingu til hliðar. Eftir því hvor útfærslan er valin verða herbergin á bilinu tvö til þrjú hundruð.

„Það er þessi stærðargráða sem menn segja að sé hagkvæmust í rekstri," segir Rúnar sem spurður um staðsetninguna bendir á að Hótel Loftleiðir er í næsta nágrenni. „Þetta er í jaðrinum á miðbænum og við rætur Öskjuhlíðar," segir hann um kostina við að reka hótel við Flugvallarveg.

gar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×