Fótbolti

Messi og Kobe leika saman í auglýsingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant er einn frægastasti körfuboltamaður heimsins og Lionel Messi er einn frægasti fótboltamaðurinn í heimi og það vekur því vissulega mikla athygli þegar þessir tveir heimsfrægu íþróttamenn leika saman í auglýsingu.

Turkish Airlines getur státað af því í nýjustu auglýsingu flugfélagsins að hafa Messi og Kobe með sér í liði. Kobe Bryant hefur aldrei falið áhuga sinn á fótbolta og lét meira að segja mynda sig í Barcelona-treyju fyrir forsíðu ESPN-tímaritsins.

Þeir félagar keppa í auglýsingunni um hylli ungs drengs sem er með þeim í fluginu og beita við það hinum ýmsu brögðum og knattleikni. Auglýsingin er vel heppnuð og skemmtileg og það er hægt að sjá hana með því að smella hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×