Fótbolti

Casillas færi í frí með Ronaldo

Ronaldo og Casillas.
Ronaldo og Casillas.
Spænskir fjölmiðlar hafa verið að flytja fréttir af því að ósætti sé á milli Cristiano Ronaldo og markvarðarins Iker Casillas en þeir leika saman hjá Real Madrid.

Þessi umræða magnaðist er Casillas fagnaði ekki sigurmarki hjá Ronaldo í Meistaradeildinni. Hún fer í taugarnar á markverðinum.

"Myndi ég fara í frí með Ronaldo? Að sjálfsögðu myndi ég gera það," sagði Casillas.

"Portúgalarnir Ronaldo, Pepe og Coentrao eru mikið saman bæði með landsliðinu og hjá Real. Marcelo er sprelligosinn í hópnum á meðan Özil tjáir sig lítið. Það stöðvar samt ekki Ramos frá því að tala stanslaust við hann," sagði markvörðurinn léttur aðspurður um klefastemninguna.

"Strákarnir kalla mig melónuna því hausinn á mér er miklu stærri en skrokkurinn. Það nafn er fast á mér."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×