Fótbolti

Messi hjá Barcelona til 2018

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Messi, Xavi og Puyol.
Messi, Xavi og Puyol. Nordicphotos/Getty
Barcelona framlengdi í dag samninga við þrjá uppalda leikmenn sína.

Leikmennirnir sem um ræðir eru fyrirliðinn og miðvörðurinn Carles Puyol, miðjumaðurinn og varafyrirliðinn Xavi auk Argentínumannsins Lionel Messi.

Knattspyrnumennirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa leikið með Barcelona allan sinn atvinnumannaferil. Xavi lét hafa eftir sér á dögunum að það kæmi ekki til greina að leika með neinu öðru liði en Barcelona.

Puyol er 34 ára, Xavi er 32 ára og Messi 25 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×