Fótbolti

Roura leysir Vilanova af hólmi

Jordi Roura.
Jordi Roura.
Ekkert verður af því að Pep Guardiola taki aftur við Barcelona en félagið tilkynnti í kvöld að aðstoðarþjálfarinn Jordi Roura myndi stýra félaginu fjarveru aðalþjálfarans, Tito Vilanova.

Eins og kunnugt er hefur krabbamein tekið sig aftur upp hjá Vilanova og mun hann leggjast undir hnífinn vegna meinsins. Hann getur ekki snúið aftur fyrr en í fyrsta lagi í febrúar.

Roura og Vilanova eru æskuvinir. Roura hefur lítið þjálfað. Var aðstoðarþjálfari hjá Yokohama Flugels á síðustu öld. Hann þjálfaði svo þriðjudeildarlið Hospitalet árið 2007 en var rekinn eftir aðeins nokkra mánuði í starfi.

Hann var tekinn inn í þjálfarateymi Pep Guardiola árið 2009 og var aðallega njósnari. Roura var svo gerður að aðstoðarþjálfara er vinur hans Vilanova tók við sem aðalþjálfari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×