Fótbolti

Stórbrotið mark Arons sem er markahæstur í Danmörku | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aron Jóhannsson heldur áfram að skora með liði sínu AGF í Danmörku. Aron skoraði eitt marka AGF í 3-0 útisigri á AaB í dönsku úrvalsdeildinni.

Aron hefur nú skorað þrettán mörk og er markahæstur í deildinni ásamt Andreas Cornelius hjá FC Kaupmannahöfn. Aron hefur þó leikið mun færri mínútur, eða sem nemur um fjórum heilum leikjum, en keppinautur sinn.

Mark Arons var glæsilegt samkvæmt Twitter-síðu AGF en það kom á 44. mínútu. Gestirnir frá Árósum leiddu með tveimur mörkum í hálfleik og bættu við marki í síðari hálfleik.

Með sigrinum komst AGF upp fyrir Theodór Elmar Bjarnason og félaga hjá Randers í 5. sæti deildarinnar. 4.806 áhorfendur fylgdust með gangi mála í kuldanum í Álaborg í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×