Sport

Djokovic: Þessi titill var fyrir pabba

Djokovic með bikarinn sem hann ætlar með til pabba síns.
Djokovic með bikarinn sem hann ætlar með til pabba síns.
Serbinn Novak Djokovic lauk tennistímabilinu á besta mögulega hátt. Með því að vinna Roger Federer í úrslitum World Tour-mótsins.

Veitingahúsaeigandinn náði að einbeita sér að leiknum þrátt fyrir að faðir hans liggi mjög veikur á sjúkrahúsi.

"Þessi titill var fyrir pabba. Hann er sem betur fer að braggast en á tímabili var óttast um hann. Hann er samt enn á gjörgæslu og verður þar eitthvað áfram. Ég mun taka bikarinn með mér til hans og athuga hvort ég geti ekki fengið hann til þess að brosa," sagði Djokovic.

Serbinn mun verða í efsta sæti heimslistans um áramótin en hann hefur átt gott ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×