Fótbolti

Þrír Íslendingar skoruðu er Halmstad komst upp í úrvalsdeild

Guðjón og Kristinn fagna eftir leik.
Guðjón og Kristinn fagna eftir leik. mynd/facebook
Lið þeirra Guðjóns Baldvinssonar og Kristins Steindórssonar, Halmstad, tryggði sér í dag sæti í sænsku úrvalsdeildinni. Halmstad hafði betur í umspili gegn Sundsvall.

Halmstad vann fyrri leik liðanna 3-0 og var því komið með annan fótinn í efstu deild fyrir leikinn í dag. Hann var bráðfjörugur og endaði með 4-3 sigri Sundsvall. Halmstad vinnur aftur á móti rimmuna 4-6.

Guðjón og Kristinn skoruðu báðir fyrir Halmstad og Ari Freyr Skúlason skoraði eitt marka Sundsvall. Kristinn skoraði úr víti sem Guðjón fiskaði. Ari lagði líka upp eitt mark fyrir Sundsvall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×