Fótbolti

Messi orðinn pabbi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, er orðinn pabbi en kærasta hans, Antonella Roccuzzo, fæddi dreng í dag. Hann hefur þegar fengið nafnið Thiago.

Messi fékk leyfi til að fara af æfingu Barcelona í morgun til að fylgja kærustu sinni upp á fæðingardeildina.

Drengurinn fæddist svo síðdegis í dag en ekki er búist við öðru en að Messi verði á sínum stað í liði Barcelona þegar það mætir Celta Vigo á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×