Fótbolti

Glæsimark Iniesta í öruggum sigri Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Barcelona hafði betur gegn C-deildarliði Deportivo Alaves í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld, 3-0.

Það tók Börsunga 40 mínútur að komast á blað en David Villa skoraði þá fyrsta mark leiksins.

Andres Iniesta jók svo forystuna með glæsilegu marki snemma í síðari hálfleik en hann skrúfaði boltann efst í markvinkilinn fjær með skoti af vítateigslínunni.

Cesc Fabregas innsiglaði svo öruggan sigur með marki undir lok leiksins en liðin mætast á ný þann 27. nóvember og fer leikurinn þá fram á Nou Camp í Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×