Fótbolti

Viltu hanna nýja skó fyrir Messi?

Messi vill að þú setjir lit á þennan skó.
Messi vill að þú setjir lit á þennan skó.
Lionel Messi, ofurstjarna Barcelona, er að koma með nýjan skó á markaðinn og hann vill að aðdáendur sínir hanni skóinn.

Messi spilar í F50-skónum frá Adidas og hann vill að skórinn glansi og verði heillandi.

"Í fótbolta tjáir maður sig með fótunum. Ef maður veit að skórnir eru einstakir þá líður manni eins og maður sé sérstakur. Fyrir vikið spilar maður af meira sjálfstrausti," sagði Messi.

"Ég er mjög spenntur að sjá hönnunina sem mun koma frá aðdáendum mínum."

Hægt er að hanna skó fyrir Messi hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×