Lífið

Mamma kemur með Mika

Tónlistarmaðurinn Mika
Tónlistarmaðurinn Mika
Sextán manna hópur fylgir tónlistarmanninum Mika hingað til lands þegar hann spilar í Silfurbergi í Hörpu 18. desember. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru í hópnum bæði hljómsveitin hans og tæknimenn, auk þess sem móðir hans ætlar að vera með í för.

Mika hefur verið á ferðalagi um alla Evrópu til að fylgja eftir sinni nýjustu plötu, The Origin Of Love. Þar hefur hann spilað á 1.500 til 3.000 manna stöðum og hefur verið nær uppselt á alla tónleikana.

Einnig seldist upp á 52 sekúndum á þrenna tónleika sem hann ætlar að halda í Bandaríkjunum. Um 1.200 manns komast á tónleika hans í Hörpu og hefst miðasala í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.