Bannið hjá þjálfara Juventus stytt um sex mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. október 2012 17:03 Antonio Conte, þjálfari Juventus. Mynd/AFP
Antonio Conte, þjálfari Juventus, var dæmdur í tíu mánaða bann fyrir tímabilið vegna þess að hann tilkynnti ekki um það þegar leikmenn hans hagræddu úrslitum þegar hann þjálfaði Siena tímabilið 2010-11. Íþróttadómstóll Ítalíu hefur nú stytt bannið um sex mánuði. Conte átti að missa af öllu tímabilinu en áfrýjaði útskurði ítalska fótboltasambandsins til Íþrótta- og Ólympíunefndar Ítala sem ákvað að stytta bannið úr tíu mánuðum niður í fjóra mánuði. Hinn 43 ára gamli Antonio Conte má nú stýra Juventus-liðinu á nýjan leik frá og með 9. desember en hann gerði Juve að ítölskum meisturum á sínu fyrsta ári með liðinu og liðið tapaði þá ekki leik allt tímabilið. Conte var í fyrstu ákærður um að hafa vitað af hagræðingu úrslita í tveimur leikjum Siena en var seinna sýknaður af því að hafa vitað af braski leikmanna sinna í öðrum þeirra. Samkvæmt banninu þá má Conte stýra æfingum Juventus-liðsins en hann má aftur á móti ekki hafa nein afskipti af liðinu á leikdegi. Massimo Carrera stýrir Juventus-liðinu í leikjunum þar til að Conte kemur úr banninu. Antonio Conte mun missa af fimmtán deildarleikjum á þessum fjórum mánuðum og öll sex leikjum liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Ítalski boltinn Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Körfubolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Enski boltinn Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Fótbolti Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Enski boltinn Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Fótbolti Fleiri fréttir Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Sjá meira