Fótbolti

Mourinho: Við höfum ekki efni á því að tapa fleiri stigum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mourinho
Mourinho Mynd. / Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir að félagið hafi ekki efni á því að tapa fleiri stigum í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Liði hefur aðeins náð í fjögur stig af tólf mögulegum það sem af er tímabilsins en það mun vera versta byrjun félagsins í áratug.

Real Madrid mætir Deportivo síðar í dag og vill stjórinn aðeins fá þrjú stig úr þeim leik.

„Við verðum að vinna og þurfum að fara tengja saman sigurleiki. Þetta tímabil hefur ekki farið vel af stað en við erum vel mannaðir og þurfum bara að snúa við genginu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×