Tónlist

Vasadiskó kveður X-ið 977

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Allt er breytingum háð og nú er komið að því að útvarpsþátturinn Vasadiskó kveðji útvarpsstöðina X-ið 977. Þátturinn varð til upp úr tónlistarbloggi þáttarstjórnanda fyrir einu og hálfi ári og hefur síðan þá hlotið þónokkra hlustun samkvæmt hlustandakönnunum. Margir góðir gestir hafa heimsótt þáttinn, innlendir sem erlendir, og shufflað Vasadiskóunum sínum (mp3 spilurum), spilað og sungið. Mörg lög sem síðar urðu þjóðþekkt voru frumflutt í þættinum auk þess sem þátturinn átti það til að vera fyrstur með fréttirnar, eins og þegar Botnleðja staðfesti endurkomu sína nokkrum mánuðum áður en þeir stigu á svið.

Lokaþáttur Vasadiskó verður núna á sunnudag og verður þar skiljanlega flugeldasýning um hábjartan dag. Jónas Sig, Kiriyama Family, 1860 og Hjalti Jón Sverrisson hafa boðað komu sína. Allir ætla að mæta með hljóðfærin sín og spila eitt lag úr eigin lagabanka og eitt vel valið tökulag.

Þátturinn á sunnudag verður klukkustund lengri en venjulega og stútfullur af gæða tónlist. Bæði verður spiluð ný tónlist að hætti þáttarins en auk þess verða leikin eldri og upptökur sem gerðar hafa verið í þættinum á líftíma hans.

Þátturinn verður á dagskrá X-sins á sunnudag kl. 15.

Alla þætti Vasadiskó frá upphafi má finna hér á Vísi.is.

Fylgist með Vasadiskó áfram á Fésbókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.