Fótbolti

Matthías tapaði fyrir markvarðaþjálfara Start í vítaspyrnukeppni | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Start og markahæsti leikmaður norsku B-deildarinnar, mátti þola tap fyrir hinum 66 ára gamla Ruthford Petersen í vítaspyrnukeppni.

Myndband af atvikinum má sjá neðst í fréttinni en það er birt á heimasíðu Start. Báðir fengu þrjár spyrnur en Petersen nýtti allar sínar á meðan að Matthías lét verja frá sér eina.

Sérstaklega vekur athygli síðasta spyrna markvarðaþjálfarans en óhætt er að segja að hann hafi unnið keppnina með stæl.

Myndbandið má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×