Lífið

Allir keyptu fjólubláa tölu

Starfsmenn WOW air með fjólubláu töluna sína.
Starfsmenn WOW air með fjólubláu töluna sína.
Allir starfsmenn WOW air keyptu í dag fjólubláa tölu til styrktar Kvennaathvarfinu og fyrirtækið sjálft tvöfaldaði svo upphæðina sem rann til samtakanna. Sala á tölunum hefur staðið yfir undanfarna daga um allt land og stendur allt fram til 23. september. Kvennaathvarfið hefur í þrjátíu ár aðstoðað konur og börn af öllu landinu sem flýja ofbeldi.

„Okkur hjá WOW air langaði öllum að styrkja þetta góða málefni enda löngu tímabært að Kvennaathvarfið fái stærra og betra húsnæði. Kvennaathvarfið veitir mikilvæga þjónustu sem ekki stendur til boða annars staðar svo það er mikilvægt að það sé góð aðstaða fyrir þær konur sem þangað leita. Okkur langar til að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama" segir Svanhvít Friðriksdóttir upplýsingafulltrúi WOW air.

.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.