Fótbolti

Gunnar Heiðar og félagar unnu góðan útisigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Mynd/AP
Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í Norrköping unnu 2-1 útisigur á Syrianska FC í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Norrköping-liðið er í 5. sæti deildarinnar eftir þennan sigur en liðið var búið að vera tapa stigum í undanförnum leikjum.

Gunnar Heiðar var í byrjunarliði Norrköping í leiknum en var skipt útaf á 71. mínútu þegar staðan var 1-0 fyrir Norrköping.

Lars Christian Krogh Gerson skoraði fyrra mark Norrköping strax á 2. mínútu leiksins og varamaður Gunnars Heiðars, Imad Khalili, kom liðinu síðan í 2-0 á 75. mínútu áður en Robert Massi minnkaði muninn fyrir Syrianska.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×