Fótbolti

Ronaldo: Ég fagna þegar ég þarf að fagna

Ronaldo fagnar í gær.
Ronaldo fagnar í gær.
Það hefur mikið verið rætt og ritað um óánægju Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid. Hann fagnaði ekki um daginn með liðinu en gaf sig allan í fagnið á sigurmarkinu gegn Man. City í gær.

"Ég fagna þegar ég þarf að fagna. Þetta var mikilvægur leikur og við erum með í baráttunni," sagði Ronaldo um fagnið.

Ronaldo hefur ekkert viljað tjá sig meira um það af hverju hann sé ekki sáttur í Madrid þessa dagana.

Leikgleðin var þó í fyrirrúmi í gær og aldrei að vita nema framhald verði á góðum fögnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×