Fótbolti

Kristinn skoraði og Halmstad í annað sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Halmstad kom sér upp í annað sæti sænsku B-deildarinnar í kvöld með öruggum 4-0 sigri á Brage í sænsku B-deildinni í kvöld.

Kristinn Steindórsson skoraði eitt marka Halmstad í leiknum en hann spilaði allan leikinn. Guðjón Baldvinsson lék einnig allan leikinn og lagði upp eitt mark.

Þetta var fyrsti leikurinn í 22. umferð en Brommapojkarna er tveimur stigum á eftir í þriðja sætinu og gæti endurheimt það með sigri á Umeå um helgina. Öster er með tíu stiga forystu á toppi deildarinnar.

Í Noregi vann Vålerenga stórsigur á Sandnes Ulf, 4-0. Steinþór Freyr Þorsteinsson var í byrjunarliði síðarnefnda félagsins og Arnór Ingvi Traustason kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik.

Óskar Örn Hauksson gekk í dag í raðir Sandnes Ulf á lánssamningi frá KR og spilar með liðinu til loka tímabilsins.

Liðið er í þrettánda sæti deildarinnar með 20 stig eftir 20 leiki. Liðið er fimm stigum frá fallsæti eins og málin standa nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×