Fótbolti

Pepe hvílir gegn Barcelona

Portúgalski varnarmaðurinn Pepe mun hvíla á fimmtudaginn er Real Madrid og Barcelona mætast í meistarakeppninni á Spáni.

Pepe fékk skurð á ennið í leik Real og Valencia um helgina og vilja læknar liðsins ekki að hann spili leikinn.

Þeir segja að það sé í fínu lagi með leikmanninn sem var undir eftirliti lækna í sólarhring. Í ljósi meiðslanna telja þeir samt heillavænlegast að leyfa Portúgalanum að hvíla og jafna sig í höfðinu.

Meistarakeppnin á Spáni er af dýrari gerðinni eða tveir leikir. Fyrri leikurinn fer fram á heimavelli Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×