Fótbolti

Fimm mörk í seinni hálfleik hjá Barca og Real - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Xavi fagnar hér í kvöld.
Xavi fagnar hér í kvöld. Mynd/AFP
Barcelona og Real Madrid buðu upp á stórkostlega skemmtun í seinni hálfleik í kvöld þegar liðin mættust í fyrri leik sínum í spænska ofurbikarnum á Nývangi í Barcelona.

Staðan var 0-0 þar til á 55. mínútu þegar Cristiano Ronaldo kom Real Madrid yfir. Barcelona tók þá öll völd á vellinum og svaraði með þremur mörkum frá þeim Pedro, Lionel Messi og Xavi.

Angel Di Maria náði að minnka muninn fimm mínútum fyrir leikslok en það mark gæti orðið dýrmætt fyrir seinni leikinn á Bernabeu enda nægir Real nú bara 1-0 eða 2-1 sigur til að vinna spænska ofurbikarinn.

Ljósmyndarar AFP voru mættir á Nou Camp í kvöld og tóku margar flottar myndir. Vísir hefur tekið nokkrar góðar saman í myndasyrpu og myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×