Fótbolti

Real Madrid tapaði gegn Getafe

Xabi og Ronaldo stóðu ekki undir væntingum í kvöld.
Xabi og Ronaldo stóðu ekki undir væntingum í kvöld.
Spánarmeistarar Real Madrid fengu á baukinn í kvöld er þeir sóttu Getafe heim. Heimamenn geysilega beittir í síðari hálfleik og nældu í sigur.

Real var í fínum málum í hálfleik enda 1-0 yfir eftir fínt mark Higuain.

Heimamenn gáfust ekki upp og Valera jafnaði leikinn með góðu skallamarki í upphafi síðari hálfleiks.

Það var síðan Barrada sem tryggði liðinu sigur korteri fyrir leikslok. Heimamenn héldu áfram að sækja í kjölfarið og voru óheppnir að skora ekki þriðja markið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×