Fótbolti

Alfreð með tvö mörk og eina stoðsendingu í stórsigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason
Alfreð Finnbogason Mynd/Nordic Photos/Getty
Alfreð Finnbogason og félagar í Helsingborg unnu 7-2 stórsigur á Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Alfreð skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og lagði síðan upp mark í þeim seinni.

Alfreð hefur skorað 12 mörk í 17 leikjum í sænska úrvalsdeildinni á tímabilinu en þar af hafa sjö af mörkum hans komið í síðustu fimm leikjum. Alfreð hefur komið að marki í öllum þessum fimm leikjum.

Alfreð var líka með þrjár stoðsendingar í sigri Helsingborg á Slask Wroclaw í Evrópudeildinni í síðustu viku.

Alfreð kom Helsingborg í 1-0 á strax á þriðju mínútu leiksins og kom síðan liði sínu í 3-1 á 40. mínútu eftir að Kalmar minnkaði muninn í 2-1. Alfreð lagði upp mark fyrir Rachid Bouaouzan á 57. mínútu en hann kom þá Helsingborg í 5-2.

Helsingborg er í 4. sæti deildarinnar eftir þennan sigur en á leik inni á AIK sem er með tveimur stigum meira í þriðja sætinu. Elfsborg og Malmö eru í efstu sætunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×